Tryggvi

...er góður maður!

04.04.2011 14:36:10 / tryggvi

Tryggvi

Einu sinni fyrir nokkrum árum var ég með blogg. Svo hætti ég að vera með blogg. Af hverju man ég ekki alveg, líklega af því að það var hætt að vera í tísku. Í dag finnst mér eins og það sé aftur að komast í tísku þannig að ég gæti alveg hugsað mér að byrja aftur á því. 
Hvar ég ætti að byrja er smá hausverkur. Það hefur svo rosalega margt breyst síðan síðast þannig að ég ætti nú að hafa um nóg að skrifa. ég get sagt sögur af sjálfum mér... sögur af vinum mínum... sögur af því þegar ég flutti til Englands, Spánar eða jafnvel þegar ég kýdi melluna á Spáni. Það er reyndar mjög góð saga. Sérstaklega endirinn á henni! En ég ætla ekki að gera það strax. Save the best till the last. Reyndar er ágætis saga líka um tveggja sólahringa partýið sem hann Fernando meðleigjandi minn hélt í Barcelona. Hann er mjög skemmtilegur náungi. Gæti skrifað um það þegar ég fór á hjólaskautadiskó hérna í London og svokallaður vinur minn ýtti mér svo hratt að ég flaug á hausinn þannig að allt diskótekið stoppaði. Meiddi mig samt ekki.. allavega ekki svona opinberlega. Gat samt ekki setið á rassgatinu í mánuð. gæti líka skrifað um þegar ég hætti að drekka... en þá væri ég að ljúga... hætti nefninlega aldrei... nema stundum á sunnudögum. Ég er allavega búin að gera helling sem heimurinn ætti að geta skemmt sér yfir... ég er þá allavega að sinna minni skyldu við að vera ég.. listamaðurinn... skemmtikrafturinn... gaurinn sem vill að allir brosi :)
en hvernig sem ég fer að þessu þá er ég allavega búin að skrifa eitt blogg í viðbót! Næsta verður skemmtilegra .. ég lofa ... ég er allavega búin að gera forsíðuna ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 04:14:32 / tryggvi

2007-2008

Ok.. Reynum þetta.

Fyrir ári síðan var í staddur í Cape Town í S-Afríku. Undanfarna daga hef ég verið að endurupplifa hvern einasta dag í ferðalaginu. Simmi er örugglega búin að fá ógeð af setningum sem byrja á .. pældu í því en fyrir einu ári síðan... Ætli það hafi verið þess vegna sem gullfiskurinn okkar dó?

Á einu ári breytist ýmislegt. Ég er orðin fullorðin eins og ég var búin að lofa Láka frænda! Þykist allavega vera það! Ég hef ferðast um heimsins höf, kynnst nýju fólki og framandi menningu. Borðað krókódíl í tveimur löndum og drukkið öl í enþá fleirum. Hoppað úr flugvél og kafað með hákörlum. Fluttist búferlum úr Setberginu, skipti um vinnu og byrjað í háskóla. Bloggað fjórum sinnum en klárað Bubbles þúsund sinnum. Keypti þvottavél, rakvél og fataskáp. Fór á hljómleika, tónleika og dansleiki. Hélt jólin og áramótin á nýjum stöðum og sprengdi stóra tertu á gamlárskvöld.

Afbragðsár að baki... jafnvel eitt það besta. Sannfærður um að þetta ár verði jafngott ef ekki bara betra. Hver er sinnar gæfu smiður .. nema hann sé þúsundþjalasmiður.. sagði einhver og ég ætla að fylgja því bara. Hljómar ágætlega og getur varla klikkað. 

Tryggvi


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 19:41:16 / tryggvi

Hvissbarabúmm...

Er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að gera svona " Fyrir einu ári síðan..." færslu.

 

Ætla að hugsa það aðeins lengur!


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 01:31:28 / tryggvi

Drasl

 

Ætli það sé ekki best að standa við stóru orðin í þessu og halda partýinu gangandi.

Skemmti mér konunglega á Nýdönsk á laugardaginn. Náði að sjá einn mann labba útaf sviðinu og and that´s it. Horfði ekkert til himins, varð aldrei Alelda og hvað þá  sáldrandi brjáli...  Svekkjandi.

Hef sett mér ný markmið í lífinu! Einn daginn segi ég og skrifa...
Nr. 1 Ætla ég að verða umsjónarmaður Stundarinnar okkar!
Nr.2 Ætla ég að syngja í landsfrægri hljómsveit!

Ég veit.. stór og göfug markmið.. en einhverju verður maður að stefna að!

Er að fara í próf á miðvikudaginn. Aðferðir og hugtök í bókmenntafræði Háskóla Íslands. Hljómar frekar boring.. Er það líka eiginlega. Meira að segja bara frekar mikið boring.
Eftir prófið get ég loksins farið að mæta aftur í ræktina. Pumpa nokkur lóð og hlaupa nokkra kílómetra. Get ekki beðið eftir að byrja að svitna og taka á því aftur. Líkamsrækt er betri en garðrækt segi ég alltaf. Kannski að maður skelli sér í nokkra tíma í ljósabekkinn og verði svartur aftur. Stefni á að verða orðin jafn massaður og tanaður og Víðir Leifs var fyrir ári síðan, nýkomin frá Kolding!

 Endurlífgun stendur enn yfir... en gengur hægt. Síðunni líður eftir atvikum illa!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 02:39:58 / tryggvi

SimmsalaBimm

Eins og við Sigmundur og Gulli lifum fábrotnu og tilbreytingarsnauðu lífi hérna á Tjarnarbrautinni þá gerist það svona af og til að smá spaug veltur fram. Sigmundur kastaði fram einu ferlega sniðugu um daginn sem honum Gulla fannst svo hrikalega sniðugt að greyið drukknaði næstum því í fiskabúrinu sínu! Eftir  að hafa veitt Gulla greyinu fyrstu hjálp í faðmlögum* veittist ég að Sigmundi og sagði honum að voga sér ekki að stofna lífi Gulla aftur í hættu!  Seinna um daginn fór ég í hugleiðslugöngutúr úr stofunni og inn í eldhús og á leið minni þangað áttaði ég mig á hversu spaugilegt það var þegar ég var að reyna að blása lífi í gullfiskinn Gulla!

 Spaugið hans Sigmundar var svona:
Við endalok jarðarinnar, dóu allir og fóru til himna. Það hefur aldrei verið svona mikið að gera við Gullna Hliðið, svo Guð mætir í eigin persónu

til að hjálpa til.
Hann segir: "Ég vil að allir karlmennirnir myndi tvær raðir. Í aðra röðina fara karlmenn sem létu konurnar sínar stjórna sér. 'I hina fara þeir sem stjórnuðu konunum sínum. Konunar fara svo með Lykla-Pétri."

Þetta tekur smá tíma, en að lokum eru allar konurnar farnar og karlmennirnir hafa myndað tvær raðir. Röðin af karlmönnum sem létu konuna stjórna var fleiri þúsund kílómetrar. Hún ætlaði bara engan enda að taka. Í hinni röðinni var einn gaur. Guð varð alveg brjálaður: "Þið ættuð að skammast ykkar!. Ég skapaði ykkur í minni mynd og þið voruð allir rasskelltir af makanum. Lítið á eina son minn sem gerði mig stoltan", segir Guð og bendir á þann sem stendur einn. "Lærið af honum!! Segðu þeim það, kæri sonur, hvernig fórstu að því að vera sá eini til að komast í þessa röð?!" "Veit það ekki,"segir hann skömmustulegur,

"konan mín sagði mér að standa hérna."

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 03:49:11 / tryggvi

Konugrín

Eitt létt spaug í tilefni af því að í gær var ógeðslegt veður, fáir í góðu skapi og fyrsta fréttin í fréttatíma RÚV var um beljur!

 

Kona ein var að steikja egg handa sínum heittelskaða eiginmanni. Allt í einu ryðst bóndinn inn í eldhúsið. "Varlega varlega...! Settu meira smjör!  Guð hjálpi mér...!  Þú ert að steikja Of mörg egg í einu. OF MÖRG! Snúðu þeim! SNÚÐU ÞEIM NÚNA!"

"Við þurfum meira Smjör. Guð minn góður! VIÐ ÞURFUM MEIRA SMJÖR!
Eggin munu festast!" "Varlega...VARLEGA! Ég sagði VARLEGA!
Þú hlustar aldrei á mig þegar þú eldar! ALDREI! Snúðu þeim! Drífðu þig!

Ertu geggjuð! Ertu búin að tapa glórunni? Ekki gleyma að salta eggin. Þú gleymir alltaf að salta. Nota salt. NOTA SALT! S A L T!"  Konan horfði á hann og sagði. "Hvað er eiginlega að þér? Heldur þú virkilega að ég kunni ekki að steikja tvö egg?"
Eiginmaðurinn svaraði rólega, "Mig langaði bara að leyfa þér að finna hvernig mér líður þegar ég er með þig í bílnum."....

Hvað er annars að frétta?? Bannað að segja svart/hvítt/Já/nei og brjálað að gera í skólanum!


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 02:58:19 / tryggvi

Bara spaug Kalli...

,Það er erfitt að vera fyndinn" sagði Kalli vinur minn einu sinni.

Mér hefur samt alltaf þótt Kalli vera mjög sniðugur og fyndinn piltur. Einu sinni þegar við vorum á leiðinni á eitthvert Flensborgarballið rak Kalli alla snemma af stað úr partýinu, gekk vel og vandlega til verks að eigin mati, sat frekar laskaður á líkama og sál í leigubílnum sökum ölvunnar og spurði sífellt hvort við værum ekki örugglega öll með miðana okkar á ballið. Svo þegar við vorum komin inn á ballið fannst Kalli minn hvergi og eftir að hafa verið inni á ballinu í næstum því klukkutíma fann ég drenginn loksins fyrir utan staðinn, með andlitið klesst upp við rúðuna og slefandi út um allt. Ég er drengur góður og fékk að hjálpa Kalla mínum í leigubíl og sendi hann bara heim. Hann Kalli minn hafði nefninlega gleymt miðanum sínum... Það fannst mér fyndið!

Þessi sami Kalli oft betur þekktur sem Karl Óðinn Guðmundsson er yndislegur piltur og hann á afmæli í dag. Til hamingju með daginn kæri vinur. Í tilefni dagsins verður spaugarinn til heiðurs Kalla í dag enda sannur BrandaraKarl þar á ferð!

Spaugarinn 2. okt:

Menntaskólakennari hafði nýlokið við að útskýra mjög mikilvægt rannsóknarverkefni fyrir bekknum. Hann lagði sérstaklega áherslu á að enginn gæti útskrifast úr faginu nema kunna skil á verkefninu. Hann bætti svo við að hann myndi fara ítarlega í verkefnið degi síðar og einu afsakanirnar fyrir því að mæta of seint væri ef dauðsfall hefði orðið í fjölskyldunni eða illvígur sjúkdómur myndi leggja einhvern í rúmið.
Mesti gæinn í bekknum rétti upp höndina og spurði:,,En hvað ef maður er gjörsamlega búinn eftir geggjað kynlíf, kennari?"
Bekkurinn sprakk úr hlátri og gæinn var montinn með að hafa valtað yfir kennarann.
Þegar nemendurnir höfðu jafnað sig eftir hláturinn , leit kennarinn á gæjann og sagði:
"Ég býst við að þú þurfir þá bara að læra að skrifa með hinni hendinni."

 

Tryggvi


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 03:08:03 / tryggvi

Spaugarinn...

Í staðinn fyrir að setja legstein yfir þessa síðu hef ég ákveðið að halda henni gangandi. Eftir álsumarið mikla er ég orðin virðulegur nemi í Bókmenntafræði í Háskóla Íslands og sem slíkur er mér mikið í mun að halda heiðri móðurmálsins sem hæst á lofti og ætla að birta hér einn spaugara á dag þegar tími gefst til. Spaugurnum mun ég ritstela af hinum og þessum spaugsíðum og ef einhver telur sig eiga höfundarrétt á einhverjum spaugaranum sem hér birtist getur sá hinn sami snúið sér til Brands Ara sem er lögmaður Spaugarafélagsins á Íslandi. iii djók

 Spaugarinn 1. október 2007:

Maður nokkur var í leigubíl og pikkar í öxlina á bílstjóranum til þess að spyrja hann spurningar.
Leigubílstjórinn öskrar upp yfir sig, missir stjórn á bílnum, næstum því búinn að keyra í veg fyrir strætó, fer upp á gangstétt og stoppar örfáum sentímetru
m frá búðarglugga.
Í nokkrar sec. er allt hljótt í bílnum. Síðan segir bílstjórinn: "Heyrðu félagi, þetta skaltu aldrei gera aftur. Þú hræddir næstum úr mér líftóruna!"
Farþeganum er illa brugðið en segir að lokum: "Fyrirgefðu ég vissi ekki að smá pikk í öxlina myndi valda þessum viðbrögðum.."
"Æj, fyrirgefðu" segir bílstjórinn, "þetta er nú reyndar ekki þín sök.
Í dag er fyrsti dagurinn minn sem leigubílstjóri, ég er búinn að vera að keyra líkbíl í 25 ár..."

Og svona í tilefni af fyrsta Spaugaranum þá fær þessi að fljóta með:

 

Raggi keypti sér nýjan riffil og ákvað einn daginn að fara á bjarnaveiðar.  Hann ferðaðist til Alaska sá lítinn brúnan björn og skaut hann. Stuttu síðar var komið við öxlina á honum, og þegar hann sneri sér við sá hann stóran svartan björn.
Svarti björninn sagði: "Þetta voru mjög slæm mistök hjá þér, björnin sem þú skaust var frændi minn".   Ég ætla að gefa þér 2 valmöguleika. Annaðhvort lem ég þig til dauða, eða ég fæ að misnota þig."
Eftir stutta umhugsun, ákvað Raggi að samþykkja seinni valmöguleikann.   Þannig að svarti björnin sinnti þöfum sínum á honum.  Jafnvel þótt hann væri aumur í 2 vikur, náði Raggi sér bráðlega og lofaði sjálfum sér að ná fram hefndum.
Hann fór í aðra ferð til Alaska þar sem hann fann svarta björninn og skaut hann til bana. Strax á eftir var komið við öxlina á honum.  Í þetta skipti var risavaxinn skógarbjörn sem stóð við hliðina á honum.  Skógarbjörninn sagði: "þetta voru slæm mistök, Raggi. Þetta var frændi minn og núna hefurðu 2 valmöguleika.  Annað hvort lem ég þig til dauða eða við stundum gróft kynlíf."
Aftur hugsaði Raggi sig um og ákvað að það væri betra að vera samvinnufús frekar en að vera barinn til dauða.  Þótt hann hefði lifað af tók það þó nokkra mánuði fyrir Raggi að ná sér í þetta skipti.
Núna var Raggi gersamlega brjálaður, þannig að hann fór aftur til Alaska tókst að finna skógarbjörninn og skaut hann til bana.  Hann fann fyrir sælutilfinningu fyrir að hafa fengið fram hefndir, en örfáum augnarblikum seinna var bankað á öxlina á honum.
Hann sneri sér við og sá risastórann ísbjörn fyrir aftan sig.  Ísbjörninn leit á hann og sagði að lokum "Viðurkenndu það Ragnar... þú kemur ekki hingað til að veiða, er það?"

Tryggvi


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 18:00:59 / tryggvi

Álvers rútan...

Heyrðu þetta var roooosaleg vakt!!! Þetta byrjaði allt á því að ég labbaði fáránlega tímanlega út á Sólvang til að taka rútuna. Beið í ca. korter og sé hana þá nálgast... rútuna sko... labba hrikalega kúl út á gangstéttina og þóttist vera öllu vanur. Veifaði svona aðeins til að bílstjórinn myndi örugglega stoppa. Hugsanirnar þutu í gegnum hugann.. Á ég að segja góða kvöldið við alla... á ég að kinka bara kolli... sjitt ætli það sé ekki örugglega laust sæti einhverstaðar. Á ég að sitja fremast eða aftast...Vildi ég stækkun eða ekki stækkun... Er Rannveig Rist eða Brauðrist... Allt þetta þaut í gegnum hugann alveg þangað til bílstjórnn kallaði á mig þar sem ég stóð stjarfur fyrir framan opna hurðina... Ætlar þú með vinur??? Ég fann saltbragð á vörunum og svitadropa á enninu... Here I come sagði ég ekki svo svalur... Steig upp í rútuna kinkaði kolli til bílstjórans og snéri mér hægt í slow motion að lýðnum sem ég átti von á í rútunni.... BANG..... Það var ekki einn einasti maður í rútunni.... Hahaha, Það er bara tómur bíll núna,, sagði ég við bílstjórann. Hann svaraði ekki. Vissi pottþétt að ég var nýliði. Á Hringbrautinni komu þrír kallar upp í bílinn. Settust eins og það væri skipulagt allt í kringum mig en engin hjá hvor öðrum. Svona til að brjóta ísinn sný ég mér að þeim tveim sem sátu fyrir aftan mig.. Báðir menn á sextugsaldri með sixpensara. Eruð þið nokkuð í steypuskálanum.. spurði ég þá. Þeir rétt náðu að rífa hökuna af brjóstinu sínu og horfðu á mig eins og ég væri hálfviti.... HA??" .... ,,UUU hérna,, eruð þið nokkuð í steypuskálanum" náði ég að hvísla út úr mér... Steypuskálanum.. Puff nei. Við erum í Kerskálanum!.... Svo sver ég það að mér fannst þeir segja .. Andskotans nýliðar alltaf hreint...

Ég ákvað að þeigja bara restina af leiðinni.....
Eftir svo prýðisgóða vakt með þokkalega öflugu fólki sýnist mér fór ég sæll og glaður í rútuna heim. Stökk inn eins og ég hefði aldrei gert neitt annað.. beint aftast með kúl gaurunum og lét svo bílstjórann stoppa þar sem er ekki einu sinni stoppistöð svo að ég gæti farið út.

Ég get ekki beðið eftir næstu rútufer... Ekki nema fjórir og hálfur klukkutími í hana!!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 19:50:23 / tryggvi

Tryggvi

Veit ekki alveg hvar ég er staddur eins og er. Jarðfræðilega séð þá er ég komin heim frá Afríku og bý aftur í Traðarberginu hjá Múttu, Ísak og Hemma. Hausinn er samt að vissu leyti enþá í sólinni úti í Afríku. Mér skilst að það sé ekkert óvenjulegt. Jamie Lee og Leana áströlsku vinir mínir sem eru enþá úti í Kenya senda mér reglulega sms um hvað lífið sé yndislegt í útlöndum. Það er alveg satt hjá þeim...lífið er yndislegt þegar maður er í útlöndum.

Ég er samt ekkert í útlöndum lengur. Áður en ég fór spurði Láki frændi hvað ég ætlaði svo að gera þegar ég kæmi heim. Ég sagðist ætla að verða fullorðinn. Ég er semsagt orðin fullorðinn núna. Raka mig ekki jafn oft og áður og er að leita mér að vinnu. Hættur að láta eins og bjáni og ræði heimsmálin á kaffihúsum. Er svona að spá hvort ég nenni eitthvað að vera fullorðinn. Maður er náttúrulega komin á þennan aldur.

Að vera komin á einhvern aldur er ekkert spes. En á hvaða aldur er ég þá komin? Er ég komin á giftingar og barneigna aldurinn? Ekki giftist ég sjálfum mér og hvað þá að eignast barn einn og óstuddur. Er að leita mér að konu. Alltaf til í stefnumót. Þarf samt ekkert að eignast börn strax. Bara bíó eða kaffihús. Þá er eins gott að vera hreinskilinn og alvarlegur. Ekkert of alvarlegur samt.

Hversu hreinskilinn á maður samt að vera? Á ég að viðurkenna það á fyrsta deiti að mér finnst Maístjarnan fallegt lag? Eða á ég að þykjast fíla Damien Rice í botn? Held að ég verði bara að vera nokkuð hreinskilinn. Ef þú ert að fara með mér á stefnumót máttu alveg búast við því að ég spili Papana og Sálina í botni á leiðinni í bíó. Þannig er ég nú bara og hvað væri gaman við það ef maður væri ekki  maður sjálfur... Honkítonk eins og Helgi Björns segir alltaf.


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 12:50:18 / tryggvi

S-Afrika,Namibia,Botswana,Zimbabwe,Zambia,Malavi,Tanzania,Zanzibar,Kenya

Nu verdur farid hratt yfir sogu...

Sidan i Ziombabwe hefur internetsamband verid nanast ekkert og tvi ekki miklir moguleikar a ad uppfaera siduna. Afrika verdur frumstaedari og frumstaedari med hverju landinu sem vid komum til og rosalegar andstaedur allstadar.

Adrenalindagurinn i Zimbabwe var geggjadur. Vid keyrdum framhja Vic Falls fossunum og inn i enda risa gljufurs tar sem vid vorum fest vid linu og annadhvort svifum yfir gljufrid eda rulludum nidur. Tad besta var samt Gorge Swing sveiflan. Tha hendir madur ser nidur gljufrid eins og i teygjustokki tha fellur madur nidur i frjalsu falli ca. 70 metra og sveiflast svo eins og i rolu. Vaerum klarlega til i ad gera tad aftur. Seinna forum vid svo i thyrluflug yfir fossana sem var rosalega fallegt og ekki sidur skemmtilegt. Eftir Zimbabwe brunudum vid nanast beint i gegnum Zambiu. Attum moguleika a ad vera tvaer naetur a husbat en hopurinn akvad ad sleppa tvi og eyda frekar aukadogum a Zanzibar. Zambia er hins vegar aegifagur land sem er algerlega tess virdi ad skoda betur. Eftir tvaer naetur i Zambiu og laaaanga keyrsludaga i trukknum okkar komum vid til Malavi. Malavi er gridarlega fallegt eins og Zambia en einnig gridarlega fataekt. Vid tjoldudum vid bakka Lake Malavi sem er risastort vatn med otrulega flottum strondum. Tar eyddum vid fjorum nottum i afsloppun og trukkapartyum. Forum lika i gonguferd med heimafolkinu um thorpid og fataektin for ekki framhja neinum. Folkid tarna byr i kofum og illa fornum husum en samt er folkid i Malavi tad allra vingjarnlegasta sem vid hittum... reyndar eru allir i Afriku brosandi og eru vingjarnlegir... Eftir ad hafa eytt godum dogum vid Lake Malavi eyddum vid einni nott enn i Malavi og forum svo yfir til Tanzaniu. Tanzania er lika hrikalega fallegt land med einstaklega mikid dyralif. Vid keyrdum ad strondinni i Dar El Salam sem er staersta borgin i Tanzaniu og eyddum einni nott tar. Tad var reyndar ekkert sofid tar vegna gledistundar og danspartys i trukknum,,, sundprett i sjonum og vid ad grafa stulkurnar i sandinn. Tvi naest var haldid til paradisareyjunnar Zanzibar. Zanzibar er trodfull af muslimum og turistum. en vegna tess ad nuna er ekki haannatimi i turistabransanum voru fair turistar a svaedinu. eyddum einni nott i Stone Town sem er "hofudborg" Zanzibar. Tar var ekki mikid sem heilladi og for hopurinn nordur a eyjuna tar sem eru ekkert nema gullnar strendur og fallegt folk. gistum a Paradise Hotel sem ber nafn med rentu. Tegar vid voknudum forum vid ut og lobbudum nidur troppurnar a hotelinu og vorum tha komin a strondina. Ef madur for nidur  hinar troppurnar var madur komin a barinn og seinnipart dags var sjorinn svo hatt uppi ad madur gat stungid ser beint i sjoinn af barnum!! Og ad sjalfsogdu prufadi madur tad! Tad sa sko enginn eftir akvorduninni um ad eyda frekar aukadegi i Zanzibar heldur en ad fara a husbatinn i Zambiu. I Zanzibar forum vid med hopnum og snorkludum um rifin tar i kring og maelum vid eindregid med tvi!  Fra Zanzibar var haldid aftur til Dar El Salam og gist eina nott tar. Tadan keyrdum vid til Arusha og inn i Serengeti og Ngorogoro thjodgardinn. I Serengeti og Ngorogoro eru nanast oll thau dyr sem haegt er ad sja i Afriku og ad okkar mati hapunktur ferdarinnar. Vid saum Ljon, Fila, Zebrahesta, Buffalo, Hyenur, Giraffa, Hlebarda, Nashyrning, Flodhesta, Villisvin og eg veit ekki hvad og hvad... allt i sinu natturulega umhverfi. Vid vorum meira ad segja svo heppinn ad koma auga a hlebarda stokkva nidur ur tre,, nadum ad fylgja honum eftir i hau grasinu og uppi annad tre tar sem hann lagdist a grein og beid eftir brad til ad veida. Ad sja hlebarda svona er afar sjaldgjaeft. A tjaldstaedinu i Ngorogoro er stort tre. sem skiptir reyndar engu mali en tad sem skiptir mali er ad a nottunni koma Filar, Buffalo, hyenur, Villisvin og allskonar dyr og vappa a milli tjaldanna. Svo tegar vid voknudum voru haegdir dyranna ut um allt tjaldstaedid. Tau semsagt koma upp ur Ngorogoro gignum til ad fordast kuldann og leggjast jafnvel vid hlidina a tjoldum mannann til ad hlyja ser. Og aldrei gera thau neitt vid tjoldinn. Nema madur skilji eftir mat i tjaldinu.... sem er bannad. Tha verda svinin brjalud og reyna ad komast inni tjaldid. En tahu letu okkur alveg i fridi. Eftir thessa snilld keyrdum vid tilKenya og eyddum sidustu nottinni med hopnum vid landamaerin. eins og alvoru gledigjafar gera tha helt hopurinn ljotufataparty med pomp og prakt. Partyid sem var eitt tad skemmtilegasta sem vid hofum farid i heppnadist fullkomlega og var einstaklega godur endir a Safariferdinni. Reyndar fekk Tryggvi litli ad minnsta kosti 25 moskito eda maurabit a bakid eftir ad hafa sofid uti undir stjornubjortum himninum asamt odru folki. Hopurinn skiptist svo upp i Nairobi tar sem einhverjir foru beint i adra ferd , adrir beint heim og vid eyddum threm nottum tar. Teirri fyrstu i tjaldi og eftir 42 daga i tjaldi forum vid svo yfir a 5 stjornu***** hotel i midborginni. Tar vorum vid alltaf avorpud Sir og Maddam, opnad fyrir okkur hurdir og hellt i glosin okkar.

Eftir thriggja manada ferdalag um Afriku erum vid svo komin nuna til London og fljugum svo heim til Islands a morgun 5 April.

Tad er svo margt sem vaeri haegt ad segja meira um sidustu thrjar vikur, svo morg fyndin comment svo morg Has to be there moment og svo margar sogur....en tad verdur ad bida betri tima.

Afrikuferdinn er senn a enda... besti timi sem eg hef lifad og tad er ekki spurning ad vid forum aftur til Afriku! I tessari ferd hofum vid upplifad svo mikid sem vid hofdum aldrei sed.. sed svo falleg lond,, fatekt og rikidaemi, eignast frabera vini og sidast en ekki sist ordid gridarlega brun og saet. Vid maelum klarlega med tvi ad allir kikji einhvertiman til Afriku.

En alveg eins og ferdin..... tha er pistillinn buinn nuna.... Sjaumst a morgun

Tryggvi, Rut og Bobo


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 11:00:02 / tryggvi

S-Afrika-Namibia-Botswana-Zimbabwe

Okidoki...

Sidast tegar tid vissud vorum vid nykomin ur fallhlyfarstokki i Swakopmund i Namibiu. Sidan tha er lidin mjooooog langur timi og a hverjum degi er eitthvad nytt ad gerast og ef vid myndum segja fra tvi ollu tha taeki tad viku ad lesa tannig ad vid rullum hratt yfir sogu.

Eftir Namibiu forum vid yfir til Botswana. Botswana er mjog vel staett land med sterkan og godan gjaldmidil. I Botswana gistum vid eina nott a tjaldstaedi sem er vid hlidina a verndudum gardi tar sem blettatigrar lifa i verndudu umhverfi. Vid forum audvitad i tur um gardin tegar eigandinn gaf teim ad borda.. Blettatigrarnir umkringdu okkur tar sem vid stodum aftan a pallbil a medan eigandinn tok kjotstykki og fleygdi teim i allar attir og tegar "litlu" kettirnir nadu sinum bita tha saum vid nakvaemlega hversu hratt blettatigur hleypur... hviss bang bumm og teir voru horfnir... Tad sem var entha magnadra var tegar vid fengum ad koma naer teim inni i gardinum og klappa teim... frekar skritid ad sitja og klappa dyri sem getur audveldlega etid af manni handlegginn og hlaupid hradar med hann i burtu en oll onnur dyr! ..... I Botswana eyddum vid lika tveim nottum i Ethosa thjodgardinum sem er gridarlega stor thjodgardur med endalaust morgum dyrum. Tar forum vid i game drive sem er tegar madur keyrr um gardinn og reynir ad sja einhver dyr... saum ekki ljon eda fila en i stadinn saum vid orugglega milljon Zebrahesta, Giraffa, Springbook.. sem vid holdum ad se einhverskonar antilopa... helling af ikornum og hin og tessi dyr. A kvoldin satum vid svo vid vatnsbol tar sem dyrin koma og fa ser ad drekka og fyrra kvoldin komu tveir nashyrningar og kaeldu sig nidur i vantsbolinu... magnad og audvitad allt tekid upp a video og fest a filmu... Eftir thetta forum vid ad odrum thjodgardi sem heitir Okawanga Delta.. tar stod okkur til boda ad fara a kano ut i frumskoginn og eyda tveim nottum tar og labba um svaedid og vona ad vid myndum sja einhverja fila og onnur dyr... eftir ad hafa radfaert okkur vid adra ferdalanga sem hofdu farid tangad og akvedid ad gefa buddunni sma fri.. tar sm tehtta var mjog dyr frumskogarferd.. tha akvadum vid ad eyda frekar fjorum nottum a sama tjaldstaedinu... hvild.. solbad og gledi a kvoldin :)..... Tvo af thremur kvoldum endudum vid i sundlauginni hja barnum, donsudum a barbordinu og donsudum kongadans til baka ad tjoldunum.... lentum reyndar lika i sma atokum vid Irskar fyllybyttur sem rifbeinsbrutu og blodgudu bilstjorann okkar hann Steve... kaffaerdu honum okkur og enska snillingnum Gary og voru tad sem kallast a islensku halfvi.....  En vid hroktum tha audvitad i burtu med sandolum, islenskum blotsyrdum og enskum logregluthjoni og attum barinn fyrir okkur eftir tad. Seinasta kvoldid satum vid karlmennirnir a utibar lengst inni i Botswana og horfdum a Eid Smara og felaga vinna Liverpool i meistaradeildinni. ... Tja jamm... naest forum vid i bae sem heitir Kasane sem er rett hja landamaerum Botswana,Zimbabwe,Zambiu ogAngola. Tar gatum vid ekki tjaldad a rettum stad tar sem fljot sem rennur tar hja hafdi flaett yfir bakka sina og kaffaerdi hluta af tjaldstadinu. Ain for lika yfir sundlaugina a stadnum og alveg ad barnum. Fyrsta nottin var ekkert neitt hrikalega god tar sem svaedid var allt thakid midum sem vorudu vid krokodilum a svaedinu af tvi ain var komin yfir oryggisgirdinguna sem helt teim i burtu.. vubbsadeisi... I Kasane forum vid aftur i Game Drive en vegna vinds saum vid eiginlega engin dyr nema helling af Babun opunumtar en vorum tho svo heppinn ad sja hlebarda rolta yfir veginn og inni skoginn aftur... Tad gerist ekki ahverjum degi takk fyrir. Um kvoldid forum vid svo i siglingu nidur medfram anni tar sem dyrinn koma og kaela sig a kvoldin og tha loksins saum vid nokkra fila. Teir voru ad drekka, bada sig, leika ser og bara rolta um svedid... saum lika helling af flodhestum i anni og gud minn godur hvad teir eru feitir og gera ekki neitt nema hanga i vatninu og geyspa af og til...

I gaer komum vid svo hingad yfir ad Victoryufossunum i Zimbabwe. Tar sem helmingurinn af hopnum fer eim una um helgina a medan hinn helmingurinn heldur afram var farid saman ut ad borda og horft a infaedda Zimbabwestraka dansa. Tar sem thetta var sidasti dagurinn hennar Irisar skelltum vid okkur a markad herna rett hja svo hun gaeti nu keypt einhverja minjagripi. Tessi markadur var tannig ad vid hefdum audveldlega farid tarna inn med engan pening og skipt fotunum okkar fyrir minjagripi.... semsagt.. komid ut kviknakinn en med flottar styttur. Gerdum finustu kaup tho en notudum samt bara peninga. Og tar sem gjaldmidilinn herna er ekkert serstaklega sterkur tha eru allar upphaedir i haerri kantinum. Sem daemi tha keypti Tryggvi afriska skyrtu a 70.000dollara.... Zimbabwedollara. Sem er ca. 500kall.

.... i dag yfirgaf Iris okkur svo eftir manadardvol. A manudaginn tegar hun byrjar aftur i vinnunni tha verdum vid a leidinni yfir til Zambiu. Iris er storkostlegur ferdafelagi og hennar verdur sart saknad.

En ja.. Vid Rut erum svo a leidinni i adrenalindagsskra nuna eftir nokkrar min sem samanstendur af ymsum mognudum uppakomum. og a morgun forum vid i Thyrluflug yfir thessa mognudu fossa.

 tannig ad her setjum vid punkt i bili og bidjum ad heilsa i frostid.

Islendingarnir i Zimbabwe

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 20:41:15 / tryggvi

Namibia

Hello hello

Netid er af skornum skammti herna og einstaklega lengi ad vinna sina vinnu...

Erum semsagt stodd i Namibiu eins og er... i serstokum bae sem heitir Swakopmund. Erum buin ad sofa i tjaldi sidustu vikuna en fengum finustu rum herna i Swakop... ekki vanmeta tad ad sofa i rumi! Hopurinn sem er virkilega ad na vel saman skellti ser a fjorhjol a fostudaginn. Thrykktum um eydimorkina upp og nidur sandoldurnar... sjitt hvad tad var nett takk fyrir. I gaer var svo ekkert verid ad tvinona vid hlutina og af ollu tvi heimskulega sem madur getur gert tha er fallhlyfarstokk klarlega tad skemmtilegasta!!!  Jebs... vid hentum okkur ut ur flugvel i gaer og gud minn almatturgur helog maria hvad tad var magnad.....

jamm.... timinn er buinn sorry.... fjorhjolaferd i eydimorkinni og fallhlyfarstokk herna i namibiu...

 baeo


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 23:16:02 / tryggvi

Trallala i Cape Town

Jaeja gott folk... sidan sidast hefur svo sannarlega margt a daga okkar drifid her Sudur i Afriku. Iris maetti a svaedid a tridjudaginn og Rut og Bobo eru nanast ordin alheil eftir virusinn.

Tar sem Tryggvi er thekktur fyrir einstaka herramennsku og yndislegheit maetti hann ad sjalfsogdu upp a flugvoll til ad saekja Irisi kl. sex um morguninn. Iris var ad vonum feiknaspennt og anaegd yfir tvi ad vera komin a svaedid en til ad jafna sig a flugthreytunni lagdi stulkan sig tegar komid var a hostelid. Tryggvi sem einnig er thekkur fyrir gifurlegan morgunhressleika lagdi sig einnig tar sem hann hafdi einfaldlega ekkert farid ad sofa nottina adur. Astaedan fyrir tvi var su ad eftir ad hafa setid til kl. tvo a Dublinaer komumst hann og Rut ad tvi ad engin var vekjaraklukkan til ad vekja mannskapinn tegar Iris myndi maeta a svaedid. Eftir ad hafa raett alvarleika heimsins vid naeturoryggisvordinn a hostelinu rulladi hann ser ad sjalfsogdu upp a flugvol til ad saekja Skvisu 2*. Eftir blundinn tokum vid nett rolt um nagrennid og helstu straeti borgarinnar. Skelltum okkur svo upp a Table Mountain til ad njota utsynisins sem er einfaldlega faranlega falegt og flott.. en i thetta skiptid tokum vid klafinn baedi upp og nidur... Um kvoldid var svo haldin grilveisla a Hostelinu sem endadi med magnadri Poolkeppni. Keppnin var med teim reglum ad hver og einn sem skradi sig fekk thrju lif og svo ef keppandinn hittir ekki kulu ofan i gatid tha missti hann lif. Thess ma til gamans geta ad Islenski herramadurinn komst i undanurslit sem er thokkalegur arangur midad vid ca. 20 keppendur. Tapadi tar med glaesibrag fyrir Astrala sem vid teljum ad se a sterum. Heimtudum lyfjaprof en fengum bjorglas. Hapunktur keppninnar var hins vegar tegar einhver skaut svortu kulunni ofani. Tha thurfti sa hinn sami ad drekka eitt stykki trekkt. Festir fordudust tad eins og heitan eldinn ad skjota teirri svortu ofani en Iris hikadi ekki vid tad nanast i fyrsta skoti og sigri hrosandi thottist hun ekki hafa vitad reglurnar... En hun stod sig vel i thessu stulkan og bjorinn rann nidur eins og hun hefdi aldrei gert annad... serstaklega eftir leidbeiningar yfirbarthjonsins.

A midvikudaginn skelltum vid okkur svo til Robben Island sem er eyjan tar sem Nelson Mandela var i fangelsi. Skutludumst yfir i bat og skodudum eyjuna i ca. klukkutima. Leidsogumaurinn okkar... sem var furdulega likur Samuel L. Jackson... var einstaklega dramatyskur og gat verid mjooooog spes. Fyrrverandi fangi a eyjunni leiddi okkur svo um fangelsid og tad var rosalega serstakt ad standa beint fyrir framan klefann hans Mandela og hugsa til tess ad tad eru ekki neitt serstaklega morg ar sidan menn voru lokadir tarna inni, bara fyrir tad eitt ad vera med polityskar skodanir sem ekki thokknudust yfirvoldum.

Valentinusardagurinn er feikna stor og mikilvaegur i augum S-Afrikubua og a teim degi er allt skreytt med blomum, blodrum og hjortum. Hvert sem madur leit voru hjartalaga raudar urklippur og budir voru allar med serstok tilbod a ollu tvi sem mogulega gaeti verid romantyskt. Hostelid var engin undantekning. Eftir ad hafa setid nidri i sundlaugargardi i allnokkra stund faerdum vid okkur a hostelbarinn a efri haedinni tar sem starfsfolkid var buid ad sla upp heljarinnar Valentinusarparty. Tad er skemmst fra tvi ad segja ad eftir ad nokkrar skutlur voru bunar ad leggjast a barbordid og lata karlmennina sjuga skot ur naflanum vildu tau audvita fa einhvern karlmann upp a bordid. Gud ma vita af hverju en threm minutum seinna var havaxni myndarlegi islenski vikingurinn Tryggvi laggstur a barbordid med afengisskot i naflanum. Eins og gengur og gerist tha byst madur alltaf vid tvi ad einhver saenskt gydja komi og sleiki thetta af manni tha hlaut tad ad vera ekki svo. Rumlega fimmtug, ekki svo adladandi kona birtist og fekk ad taka thatt i thessu ollu saman. Skemmtilegt... tho ad saenska gydjan hafi aldrei latid sja sig. Myndir af tessu ma sja a heimasidunni hennar Irisar (blog.central.is/iraspira)

Erum svo lika buin ad skella okkur a strondina ad sjalfsogdu og forum i tur um Cape Point thjodgardinn. Cape Point er sydsti stadur S-Afriku og er fraegur fyrir tad ad tar maetast Atlantshaf og Indlandshaf. I tessum tur, sem var virkilega skemmtilegur, forum vid og kiktum a morgaesirnar i Simons Town, hjoludum slatta um mjog fallegt svaedi sem endadi i PikkNikk malsverdi i solinni. Leidsogumadurinn var alltaf ad benda okkur a skilti sem vorudu vid Babuns, sem er apategund, og sagdi ad ef vid myndum sja tha einhverstadar tha aettum vid ad lata hann vita med det samme. Astaedan fyrir tvi kom svo i ljos um leid og vid vorum ad leggja af stad aftur. Babuns aparnir hika ekki vid ad laeda ser upp ad hopi folks og hrifsa allt af teim sem hond a festir i leit af mat. Ef teir sja mat tha taka teir hann,, ef teir sja tosku tha taka teir hana og leita af mat i henni. Um leid og vid vorum ad leggja af stad saum vid ad fjolskylda sem var  tarna rett hja okkur stekkur a faetur og tveir Babunar hreidra um sig a pikknikk stadnum teirra og byrja ad borda matinn teirra. Leidsogumadurinn okkar sem var virkilega faer i sinu starfi, rulladi ad sjalfsogdu til folksins og leyfdi okkur ad taka myndir af tessu. Tvi naest stokk hann ut ur bilnum med teygjubyssuna sina og um leid og Aparnir sau hana tha stukku teir i burtu med skottid a milli lappanna. Greinilegt ad teir hafa sed Emil i Kattholti og vita hversu haettuleg teygjubyssa er.  Svo eftir ad vid hofdum verid a endastod tursins og tekid thokkalegasta rolt i brekku og stigum skelltum vid okkur i sjoppuna a stadnum til ad kaupa okkur hressingu. Tegar vid stodum i rodinni byrja allt einu allir ad aepa og hropa.. BABUN BABUN... Einmitt tha stokk Babuninn inn i sjoppuna beint ad snakkinu og kexinu, hrifsadi tad til sin og stokk ut. Og hann var ekki nema harsbreidd fa tanum a okkur tar sem vid stodum i rodinni. Fra sjoppunni stokk hann svo fra bordi til bords sem oll voru full af folki sem sat ad snaedingi og hrifsadi til sin eins mikid og hann gat og hvarf svo a braut. Asnalegur Api sem hagar ser eins og reyndur budarthjofur hehehe.

I gaer turftum vid svo ad skipta um herbergi vegna einhverrar skipulagsleysis hja Thjoverjunum sem bokudu okkur inn. Tannig ad sidustu tvaer naeturnar gistum vid thrju saman i nokkud godu hjonarumi. Threm sekundum eftir ad vid opnudum hurdina inni herbergid og hjonarumid blasti vid hropadi Tryggvi tannig ad tad heyrdist liklega i Asiu, Evropu og Bandarikjunum....PANT VERA I MIDJUNNI... Bingo..I gaer var svo sidasta kvoldid sem vid gatum kikt ut a lifid i Cape Town og gerdum tad svo sannarlega med glaesibrag. Folkid sem vinnur herna a hostelinu er ordid svo yfir sig hrifid af Islendingunum...og tha serstaklega kynthokkafulla karlmanninum... ad tvaer af stelpunum sem vinna a barnum og i mottokunni kiktu med okkur i baeinn. Tar maludum vid baeinn raudann langt fram undir morgun og er tad mal manna ad Cape Town verdi aldrei som eftir dvol okkar her. Vid eru einfaldlega buin ad flytja borgina upp um marga metra i gaedum og glaesileika. En allt sem er gaman og skemmtilegt tekur einhvertimann enda og eitthvad entha skemmtilegra tekur vid.

I fyrramalid holdum vid af stad i Safariferdina okkar og munum vid bua tad sem eftir er af ferdinni i risa trukk og tjoldum. hopurinn okkar er ekki stor en lytur alveg agaetlega ut. I 30 manna bil verdum vid ekki nema 10 manns. Thrir Islendingar, hollenskt par sem fer ad nalgast fertugt eda meira, tvaer astralskar stelpur sem eru liklega i kringum 18 til 20ara aldurinn, Bandarikjamadur sem er eldri en hollenska parid og svo ad lokum maedgur sem virka frekar hressar. Modirinn er ad vid teljum i kringum sextugt og dottirinn i kringum fertugt. Allserstakur hopur med leidsogumann sem heitir Moses og er fra Kenya. Bobo verdur her eftir ad verda laumufarthegi tar sem hann var aldrei bokadur i turinn en hann mun ekki missa af neinu.

bidjum tha ad heilsa i bili... myndir 4 eru komnar her fyrir nedan vinstarmeginn og ekki gleyma ad kikja a bloggid hennar Irisar. linkur er herna vinstra megin.

kv.

Tryggvi, Rut, Iris og ad sjalfsogdu Bobo.

*Eftir ad Iris kom tha hef eg breytt nofnunum teirra yfir i Skvisa 1 og 2. Tar sem Rut er med mer allan timan tha faer hun heidurinn ad vera Skvisa 1 og Iris er Skvisa 2.


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 15:53:19 / tryggvi

Ogledi, Hakarlar og djamm

OK.... vid erum semsagt komin nuna aftur a Ashanti hostelid okkar herna i Cape Town. Sem er ekkert nema gott mal tar sem thetta hostel er otrulega nett. Ekki jafn nett og Hemmi Gunn en samt drullunett!

Eftir ad hafa rafad um borgina i nokkra daga var komin timi til ad gera eitthvad magnad. Og hvad er magnadra en ad kafa med hakorlum? Skellti mer i hakarlakofun i gaer a medan Rut naut rigningarinnar i Cape Town. Eftir ad hafa rifid mig a faetur a hrikalega okristilegum tima um sex leytid var eg sottur halftima a eftir aetlun... sem er reyndar ekkert svo ovenjulegt fyrir S-Afrikubua... keyrdi i tvo tima hlustandi a breskar domur i aftursaetinu talandi um karlavandamal sin og maetti svo galvaskur a stadinn tar sem lagt yrdi i hann. Fyllti magann af gomsaetum morgunmat og spjalladi vid samferdafolk mitt. Skipstjorinn kom og kynnti sig og lukurnar a manninum voru a staerd vid filseyru en handartakid hinsvegar eins og leleg sulta.

Tegar vid vorum komin i batinn nybuinn ad taka sjoveikispillur og til i slaginn vid hakarlana tok eg eftir tvi ad skipstjorinn thekkti alla med nafni en aldrei heyrdi eg hann segja neitt i likingu vid nafnid mitt. seinna komst eg ad tvi ad hann kalladi mig alltaf krissi og helt ad eg vaeri Russi. Takk fyrir tad vinur. Eftir ad hafa varpad akkerum og kastad beitunni uti sjo for dallurinn ad minna othaegilega mikid a Herjolfsferdirnar i gegnum tydina. Ogledi og einstok vanlidan var allsradandi hja folkinu um bord og ekki syst hja klakabuanum Tryggva. Tegar nokkrir voru bunir ad skila morgunmatnum fram yfir bordstokkinn og eg var buin ad fara med fadir vorid tiu sinnum kom svo skipstjorinn ad mer og sagdi hatt og snjallt... Tid aettud ad taka islenska sjomanninn Krissi ykkur til fyrirmyndar og haetta thessu gubbi... Greyid madurinn matti bara thakka fyrir tad ad eg kastadi ekki upp beint a taernar a honum tar sem vanlidanin var ordin gridarleg. Akkurat a sama tima kom fyrsti hakarlinn ad beitunni og reif hana i sig med latum adeins nokkru metrum fyrir framan okkur. Frekar magnad ad sja tad. Tad fyndna var hinsvegar ad onnur breska gellan aeldi naestum tvi beint i andlitid a honum.  Skipstjorinn helt afram ad hlaeja ad teim sem voru bunir ad kasta upp og einhvernvegin var hann haldin teirri firru ad eg vaeri vid hestaheilsu tarna vid hlidina a honum. eftir ad hafa nad ad sja nokkra hakarla svamla tarna i kringum batinn gaf maginn sig svo endanlega og gomsaeti morgunmaturinn for i ollu sinu valdi beint i hafid. tegar tarna er komid vid sogu var eg semsagt buin ad vera sjoveikur i thrja tima, kasta upp og ekki entha buin ad fara ad kafa. Eftir ad kapteinninn var loksins buin ad na ad lada einn hakarlnn nogu mikid ad batnum var kofunarburinu skellt i sjoinn. Helmingurinn af lidinu treysti ser ekki til ad fara i sjoinn vegna sjoveikis og hraedslu en islenski vikingurinn med stalmagann dreif sig nu samt i blautbuninginn og ofan i bur og takk fyrir amen hvad thetta var nett. Svamlandi inni buri ofan i sjo var madur vitni ad tvi tegar hakarlinn elti beituna nokkrum sinnum og synti svo i mesta lagi 30 centimetrum framhja augunum a manni. Thriggja metra langur og hrikalega vigalegur reyndi hann ad na beitunni og slost vid burid. Ef madur hefdi ekki nu tegar verid buin ad skila morgunmatnum upp um munninn tha hefdi hann klarlega fundid ser adra leid ut a thessu augnabliki. Eftir ad hafa verid i skitkoldum sjonum i halftima klifradi madur svo upp, laus vid alla sjoveiki og brosandi ut ad eyrum. Baturinn helt i land og folkid sem hafdi eytt deginum saman kastandi upp og lidandi illa bordadi saman girnilegan lunch.  Frabaer dagur a enda thratt fyrir ogledi, aelu og vanlidan.

Tegar komid var aftur til Cape Town eldadi madur ser svo girnilegar kjuklingabringur og sagdi ollum sem vildu heyra fraegdarsogurnar af ser. Seinna um kvoldid skelltum vid okkur svo a djammid med herbergisfelogunum okkar. Tveim yndisfridum donskum stulkum sem vid kollum Heiddis og Lara. Onnur teirra lytur nakvaemlega eins ut og Heiddis en hin er bara Laruleg. annar dani baettist svo i hopinn Mads, og svo til ad fulkomna skandinavahopinn komu tveir sviar med okkur lika. Otto og Johann sem er tvifari Gudjons Vals Sigurdssonar. Tarna voru semsagt samankomin Tveir islendingar, tveir Sviar, Danir sem lyta ut eins og Heiddis og Gudjon Valur og audvitad Franski vinur okkar hann Johnathan. Eftir ad hafa byrjad a hostelinu la leidinn beint a Long Street a stadina Zula og Cool Runnings og eins og vanalega slogum vid allstadar i gegn a dansgolfinu.

Af Bobo er tad ad fretta ad hann hefur legid med virus i ruminu sidan tid frettud af honum sidast. En alveg eins og Rut er hann ad hrista tad af ser og er allur ad koma til. Rut er vid tad ad vinna fullnadarsigur a virusnum sem hun fekk i augad og heilsan eins og best verdur a kosid. Iris kemur svo brakandi hress a tridjudaginn og tha verdur slegid upp veislu af heidnum sid.

Bidjum innilega ad heilsa i frostid og snjoinn og bidjum alla ad brosa eins og vid gerum alla daga herna i solinni :)

kv Tryggvi, Rut og Bobo....


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5